Þau vilja lifa! Nemendur sýna á Barnamenningarhátíð
Borgarbókasafn – Menningarhús Spönginni
9.-23. apríl
Nemendur Brúarskóla hafa unnið þemavinnu í vetur um dýr í útrýmingarhættu. Börnin nýttu allan sköpunarkraft sinn og veltu fyrir sér samspili dýraríkisins og okkar sjálfra. Þau uppgötvaðu margar áhugaverðar staðreyndir og fróðleik um fjölbreytileika náttúrunnar. Til að vekja athygli á ástandi margra dýra sem eru í útrýmingarhættu hafa þau sett fram, í myndum og máli, staðreyndir sem varpa ljósi á þá hættu sem við okkur blasir. Þau vilja lifa!
Sýningin er á dagskrá Barnamenningarhátíðar í Reykjavík.
Opnunartími Menningarhússins Spönginni er
- Mánudaga-fimmtudaga 10-19
- Föstudaga 11-19
- Laugardaga 12-16