Jólaföndur og rauður dagur
Kæru foreldrar / forráðamenn
Næstkomandi föstudag, 13. desember, verður jólaföndur frá kl. 12:30 – 13:30. Dagurinn verður jafnframt rauður dagur í Brúarskóla þar sem starfsfólk og nemendur klæðast rauðu.
Foreldrar og vinir skólans eru velkomnir að föndra með nemendum!

Boðið verður upp á kaffi, piparkökur og mandarínur.
Hlökkum til að sjá ykkur!